...biðu útá gangstétt óþreyjufullar eftir aldraðri frænku sinni, þ.e.a.s. tvær þeirra, sú yngsta var að bíða eftir systur sinni. Sólin sýndi sínar bestu hliðar og dreif stúlkurnar með mér niður í bæ þar sem við byrjuðum á því að fara út að borða, reyndum því næst að gefa öndunum brauð sem gekk betur eftir að við áttuðum okkur á því að ákaft klapp stuggaði máfunum í burtu, að ógleymdu háværu kalli litlu systur minnar; farið þið burt máfar! Sú stutta hefur lungu, skal ég segja ykkur.
Enduðum á kaffihúsi eftir göngu í sólríkum bænum. Yfir kaffi- og kakóbollum komst aldraða frænkan að því að hamborgari væri draumakvöldmáltíð þeirra systra. Heima í Veghúsum urðu fagnaðarfundir með systrunum og Bjössa og Birtu, kisurnar mínar eru jú komnar undan kisu í eigu þeirra systra. Í bænum höfðum við álpast inní bókabúð og fest kaup á litabókum og litum, eftir mikinn leik með kisunum settumst við niður á sólríkri veröndinni og lituðum og spjölluðum og lituðum og bulluðum áður en við áttuðum okkur á því að við værum orðnar svangar.
Líklega er góður hamborgarastaður nær en ég mundi bara eftir bölvaðri fabríkunni sem er á endanum á götunni þar sem ég bjó og þangað brunaði ég með stelpustóðið. Nema, þar sem við sátum og úðuðum í okkur borgurum og frönskum og kokteil þá mundu frænkur mínar eftir því að ég hafði búið í sömu götu og heimtuðu að fá að heimsækja Pétur og þar sem ég reyndi að koma mér undan því heimtuðu þær enn frekar og þar sem við keyrðum Samtúnið (ég lagði víst við endan á götunni) öskruðu frænkur mínar; þarna er húsið! Á endanum stoppuðum við í innkeyrslunni að Samtúni 8 þar sem systurnar skipuðu mér að fela mig á meðan þær myndu dingla, sem þær og gerðu. Minn fyrrverandi, hann Pétur, varð að sjálfsögðu bara glaður að sjá þessar þrjár snótir á dyratröppunni hjá sér, bauð okkur öllum inn. Eftir að hafa spjallað og gefið stúlkunum epli kvaddi ég minn fyrrverandi sem sagði að heimsóknin hefði bjargað þessu laugardagskvöldi.
Kvöldið var þó ekki búið, heima hjá mér drifum við stelpurnar okkur í náttfötin og drógum svo húsgögnin til og frá þar til við gátum allar fjórar legið saman með snakk og gos og horft á mynd. Að sjálfsögðu fórum við seint að sofa og sváfum því fram eftir morguninn eftir, allavega á þeirra mælikvarða. Fengum okkur grillaðar samlokur og appelsín í morgunmat, héldum áfram að lita og spjalla og grínast og hlægja þar til kominn var tími á bíóferð sem átti einstaklega vel við í rigningunni. Að bíóferð lokinni reyndu snótirnar að sannfæra mig um að það væri aðeins of snemmt að skila þeim til móður sinnar, nema reyndar sú stutta, hún systir mín, hún var með sitt á tæru; skila þessum tveimur eldri heim til mömmu en hún ætlaði heim með mér og sofa aðra nótt.
Að fá tækifæri til að spilla þessum systrum í stutta stund var sérdeilis skemmtilegt en þegar móðir þeirra sendi mér skilaboð, eftir að hafa fengið haug af myndum í facebook skilaboðum, um að þetta minnti hana á tímana þegar hún var hjá mér sem krakki, þá gladdist ég innilega.
Legg ekki meira á ykkur enda nægur lestur nú þegar.
sunnudagur, 24. maí 2020
fimmtudagur, 21. maí 2020
Lofnarblóm á afmælisdegi systur
Sat upp við höfðagaflinn í morgun, las og drakk kaffi. Beygði mig fram og teygði vinstri hendi aftur fyrir bak til að stöðva kláða. Spratt fram úr rúminu og sveigði mig nakin fyrir framan spegilinn í skáphurðinni, ekki bara fékk ég grun minn staðfestann heldur sá ég tvö önnur bit að auki rétt við vinstri mjöðm. Lofnarblóm varð aftur hluti af lífi mínu í dag; búin að setja lavendersápuna í sturtuna mína, lavender húðkremið komið á hillu í baðherbergisskápnum og NOW ilmolíulampinn, sem ég var svo lánsöm að fá í jólagjöf þarna um árið, sprúðlar lofnarblómailmi í svefnherberginu mínu þessa stundina. Og fær að gera það áfram, getið sveiað ykkur uppá það.
Hallveig systir mín á afmæli í dag. Enn einu sinni tókst henni að verða aftur elst. Í tilefni af því að hún fæddist hringdi ég í hana. Stóðst ekki mátið að spyrja hana að því, með tilliti til þess að ég er hugsanlega orðin miðaldra, hvað hún er þá? Eldri borgari svaraði hún hlægjandi, fagna hverju ári bætti hún svo við. Hvorug okkar er þó eldri en Esjan og því ber kannski að fagna.
Já, svei mér þá, því ekki?

miðvikudagur, 29. apríl 2020
Systrakokteill
Þegar yfirmaður þinn skipar þér að fara heim til þín, á pallinn, til að fá þér kokteil í sólinni, þá er engin ástæða til að gera neitt annað en að hlýða. Settist út á pall með Bellini í einni hendi og góða bók í hinni hendinni. Rétt búin með drykkinn sá ég athugasemd á facebook frá gamalli nágrannastúlku (sem getur nú varla verið svo gömul, mörgum árum yngri en ég) um að ég yrði nú að skála fyrir yfirmanni mínum. Jú, þið giskuðuð rétt, ég neyddist til að fá mér annann kokteil, konunglegan kokteil í ofanálag enda hinn Péturinn í lífi mínu orðinn að eina Pétrinum í lífi mínu.
Magga systir var fljót að senda mér mynd af sínum drykkjum, Sangríu OG kampavíni. Jújú, hún er nottla töluvert sjóaðri, fimm árum eldri og allt það. Bogga systir var ósköp pen með kaldan bjór í sínu glasi. Verandiþað kvikindi sá prakkari sem hún er þá stóðst hún að sjálfsögðu ekki mátið að senda mér myndir af býflugnabúinu sem hún tæklaði þarna um árið. Já, og myndir innan úr því. Af því mér þykir vænt um ykkur, hlustendur góðir, þá ætla ég að hlífa ykkur við þessum myndum. Hvort Boggu systur þyki nokkuð til mín koma má vissulega deila um en hún sagðist vera búin að fara með öll dagblöðin í endurvinnsluna.
Frá Hallveigu systir (þeirri elstu) heyrist ekki múkk. Velti því fyrir mér hvort hún geymi ennþá landa undir eldhúsinnréttingunni. Legg ekki meira á ykkur.
Magga systir var fljót að senda mér mynd af sínum drykkjum, Sangríu OG kampavíni. Jújú, hún er nottla töluvert sjóaðri, fimm árum eldri og allt það. Bogga systir var ósköp pen með kaldan bjór í sínu glasi. Verandi
Frá Hallveigu systir (þeirri elstu) heyrist ekki múkk. Velti því fyrir mér hvort hún geymi ennþá landa undir eldhúsinnréttingunni. Legg ekki meira á ykkur.
mánudagur, 27. apríl 2020
Svona og svona...
Ætli það séu ekki að verða 20 ár síðan ég var verslunarstjóri í skóversluninni Steinari Waage. Annar tími, annað líf, sannarlega, nema í dag neyddist ég loks til að henda Ecco inniskónum sem ég keypti mér þarna um árið. Bestu inniskór sem ég hef um ævina átt, svo góðir að ég prangaði þeim inn á móður mína, 2 systur og bróður minn. Í gegnum árin hafa svo sem móðir mín, systur og bróðir gengið í gegnum ferlið sem ég gekk í gegnum í dag, þ.e.a.s. að vera búin að ganga inniskóna út og gott betur.
Af öðrum stórkostlegum breytingum í lífi frúarinnar þá iðaði feit og bústin (er hægt að vera bæði?) býfluga í langa glugganum í eldhúskróknum mínum um daginn. Ég hef fylgst með öðru fólki veiða býflugur og geitunga í glas svo ég áræddi, eftir þó nokkra umhugsun, að sækja stórt glas og greip að auki með mér Kampavínskokteilabók sem ég fékk gefins um daginn. Stappaði í mig stálinu (og fullvissaði sjálfa mig um að ég gæti ekki hringt í neinn) áður en ég dembdi glasinu yfir hana Maju, ríghélt í glasið og renndi því síðan yfir á kampavínskokteilabókina. Hélt hvoru tveggja þétt að hvort öðru og gekk út á verönd þar sem ég sleppti Maju býflugu út um kattagatið á verandargirðingunni minni. Sem betur fer flaug Maja feginn þarna eitthvað allt annað í staðinn fyrir að fyrtast við og RÁÐAST Á MIG! Skjögraði aftur inn um verandardyrnar með gæsahúð um allann kropinn, já, svei mér þá, á tánum líka.
Eins og það væri ekki nóg þá átti þetta atvik sér stað á afmælisdegi Boggu systur. Boggu systur sem hefði rúllað upp dagblaði og lamið mig í hausinn áður en hún hefði lamið Maju býflugu í hausinn. Boggu systur sem sá sjálf um að losa sig við býflugnabú sem sat áfast við húsið hennar í fyrra (eða hitteðfyrra). Boggu systur sem á líklega eftir að hlægja að gunguskapnum í mér þar til önnur hvor okkar.....ojæja, svona er þetta bara og já, meðan ég man, elsku Bogga mín, innilega til hamingju með daginn! Í tilefni af því að þú fæddist þá fangaði ég feita og bústna (er hægt að vera bæði?) býflugu í glas og hleypti henni svo út í frelsið.... ha?!
Eftir vinnu í dag fór ég með plast og pappa í ruslageymsluna. Hér í húsum er vel flokkað og ekkert nema gott um það að segja nema samrýndu systkinin ákváðu að elta mig inn í ruslageymslu. Náði svo sem Bjössa nokkuð fljótt og henti út fyrir dyr. Birta hins vegar lét kerlinguna svoleiðis elta sig um alla ruslageymslu meðan bróðir hennar emjaði fyrir utan dyr. Var búin að nota bæði blíðan og reiðan tón áður en ég náði kattarræskninu út. Að auki á Sunna systurdóttir mín afmæli í dag en hún myndi reyndar ekki rúlla upp blaði og lemja mig í hausinn með því.
Legg ekki meira á ykkur að sinni elsku vinir.

þriðjudagur, 21. apríl 2020
Fyrstu kaup
Þegar ég festi kaup á minni fyrstu fasteign skipti staðsetningin mig öllu máli. Úthverfastelpan ég hafði tekið saman við mann sem var að byggja í Grafarholti. Ég flutti því úr úthverfinu mínu í enn meiri úthverfakjálka. Í staðinn fyrir að flytja niður í bæ, eins og mig hafði lengi dreymt um, flutti ég lengra upp eftir. Þegar sú ást var þrotin eftir sandhaug í verðandi stofu, steypuhrærivél á verðandi gangi, 2 eldavélahellum ofan á ofni ömmu minnar í svefnherbergi, kaffikönnu á náttborði og öllu því ryki og plasti sem fylgir nýbyggingu þá sumsé var ég staðráðin í að næst myndi ég flytja niður í bæ, láta drauminn rætast.
Svo ég flutti úr úthverfakjálkanum í gamla úthverfið mitt, nema aftur heim til mömmu og pabba í það sinnið. Leitin að fasteigninni minni tók heila meðgöngu, í 9 mánuði þræddum við pabbi fasteignir í ákveðnum póstnúmerum. Pabbi minn, skynsemdarmaður sem hann er, reyndi að brydda uppá ódýrara húsnæði sem byði uppá meira pláss en dóttirin vildi ekkert slíkt heyra, hún var að fara niður í bæ.
Niður í bæ fór hún, með sinn kött. Heilt Klambratún sem skildi hana og bestu vinkonuna að. Á þessum stað undi stúlkan sér vel, labbaði til vinnu á virkum dögum og arkaði á Sirkus um helgar. Eitt kvöldið arkaði hún yfir Klambratúnið til vinkonu sinnar, sem hafði boðið henni heim í mat, og arkaði síðan með henni á Ölstofu í staðinn fyrir að fara beina leið á Sirkusinn sinn. Þetta örlagaskref leiddi hana niður brekkuna frá íbúðinni hennar en stúlkan var sátt og ekki bara sátt, hún var ástfanginn. Aftur.
Það sem beið hennar hafði hún ekki hugmynd um, hefði ekki einu sinni getað ýmyndað sér það. Það þarf alveg sérstakt ýmyndunarafl til að ýmynda sér raunveruleikann, er það ekki?

sunnudagur, 19. apríl 2020
Á páskum og eftir ...
Um páskana
- las ég og las og las og las
- drakk kaffi í rúminu og las
- lagði mig um miðjan dag með kisunum mínum
- eldaði helst ekki mat nema eldamennskan tæki að lágmarki 1,5 klstund
- hlustaði á glás af tónlist sem ég hlustaði á þegar ég var 20+
- það var gaman
- hlustaði líka á fullt af jassi eins og Melody Gardot
- óhlýðnaðist Víði
Af hverju óhlýðnast svo kona á miðjum aldri yfirlögregluþjóni hjá ríkislögreglustjóra? Jú, vegna þess að hún hlýðir móður sinni. Af því að mamma vildi fá mig í mat á páskum þá hringdi ég í hjúkrunarfræðing fjölskyldunnar og spurði ráða. Eftir að hafa svarað ýmsum spurningum um möguleg einkenni neitandi fyrirskipaði Bogga systir að ég yrði að fara beint úr sturtu í nýþvegin föt og út. Jújú, ég mátti alveg þurrka mér eftir sturtuna sko en ég nennti samt ekki að blása á mér hárið.
Páskamáltíð mömmu var óneitanlega dásamleg sem og samverustund með foreldrum mínum. Komin í skúrinn tóku þau ekki annað í mál en að ég gisti yfir nótt. Varð það á að segja föður mínum frá einkennilegum hljóðum í bílnum mínum, pabbi var snöggur að skríða undir garminn og finna út úr vandamálinu.
Á þriðjudagsmorgunn hringdi faðir minn og sagðist vera búinn að gera verðkannanir á varahlutum og að hann væri búin að panta það sem ég þyrfti á hagstæðasta staðnum. Eftir vinnu brunaði ég og sótti það sem til þurfti á nafni föður míns. Eftir vinnu á föstudegi verslaði ég inn eftir uppskrifuðum lista frá móður minni. Brunaði heim í sturtu og nýþvegin föt þar á eftir áður en ég brunaði aðra helgi í röð vestur í skúr til foreldra minna.
Í þetta skiptið gisti ég í 2 nætur. Mamma fóðraði mig á mat, pabbi gerði við bílinn minn. Legg ekki meira á ykkur að sinni, elsku vinir.
laugardagur, 11. apríl 2020
Líf frúar og katta.
Þar sem ég stóð og steytti saman myntulaufum og sykri í kokteilhristara tókst mér að brjóta á mér nöglina á hægri þumalfingri. Ekkert sem skiptir máli, hvað er ein nögl á milli vina? Þar sem ég hamaðist við að kreista safa úr límónu rann hægri hendin á mér til með þeim afleiðingum að nýklippt nöglin á hægri þumalfingri steyptist á vinstri þumal. Rétt fyrir neðan nögl á vinstri þumli gapti blæðandi sár, geri aðrir betur. Sannast sagna eru þetta hefðbundin heimilisslys frúarinnar, þ.e.a.s. heimilisslys sem koma sjaldan fyrir aðra, eins og þetta atvik.
Auk þess get ég sagt ykkur að mér er meinilla við rifjárn, hef ekki tölu á þeim skiptum sem ég hef rifið puttana á mér til blóðs þegar ég á að vera að rífa engifer eða ost með rifjárni. Ostaskerar eru líka skaðræðistól, hef ekki heldur tölu á því hvursu oft ég hef flysjað á mér fingurna við að skera mér ostsneið.
Birta var að endasendast inn um kattalúguna. Hentist beint ofan í fjölnota Melabúðarpokann sem stendur hér á stofugólfinu. Þar steppaði hún á fjórum loppum í dágóða stund áður en hún lyppaðist niður, fæ ekki betur séð en að hún sé steinsofnuð í græna fjölnota Melabúðarpokanum.
Bjössi bróðir hennar, sem um daginn sat læstur inní bílskúr í 4 daga, hrökk upp af værum svefni er systir hans stökk inn. Á bleikum sófa fylgdist hann með henni taka sporin og er hún féll í svefn í grænum Melabúðarpokanum stökk hann af sófanum og rauk beina leið upp í rúm frúarinnar. Fæ ekki betur séð en að hann sé steinsofnaður þar.
Legg ekki meira á ykkur elskurnar, steinsofnið þið bara.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)