Sá
myndarlegi fylgist grannt með hitamælinum þessa dagana. Hann las um umhirðu
rósa á netinu í vikunni og dreif okkur í kjölfarið út í garð að fylgja þeim
eftir. Þessum böggli fylgdi þó það skammrifi að engin megi hættan vera á
næturfrosti. Nú bítur sá myndarlegi sig í herðablöðin og bolsótast út í að nú
hljóti bara að koma næturfrost fyrst hann æddi af stað. Maðurinn minn á það
nefnilega til að vera fljótfær. Þegar hann er búinn að setja undir sig hausinn
og brunar í verkið er oft ekki tauti við hann komið, eins og um daginn þegar
hann sturtaði óhemju magni af curry paste út í matinn, þá þýddi ekkert fyrir
mig að benda honum á að þetta væri paste en ekki sósa, hann var búinn að lesa á
krukkuna og var kominn í verkið. Eldhúsverkið.
Ég
stóðst ekki mátið að segja Melunum sem ég vinn með frá 2 krukku paste atviki
þess myndarlega og skríkti af kátínu þegar hlægjandi bræðurnir báðu mig um að
afhenda honum gjöf
1 ummæli:
En hann er samt fallegastur... hálf krukka eða heil..so what? með kveðju frá okkur Bróa.
Skrifa ummæli