Ég sem er ástfangin og hamingjusöm hef ekkert með púka að gera. Ég sem er lánsamari en margir aðrir sem læra aldrei alveg að njóta ástarinnar og lífsins sem hún hefur upp á að bjóða. Lífið er nefninlega allt öðruvísi þegar maður er ástfangin. Betra. Skemmtilegra. Fallegra. Innihaldsríkara. Skyggir á púka. Púki, farðu og bíttu í brosandi kex
föstudagur, 9. september 2011
Suma daga
er ég með púka að störfum í höfðinu. Púka sem gaggar og galar og kroppar í hugsanir mínar. Það angrar mig þegar hann angrar mig og ég skil ekkert í mér að vera ekki dugmeiri en hann. Suma daga.
Ég sem er ástfangin og hamingjusöm hef ekkert með púka að gera. Ég sem er lánsamari en margir aðrir sem læra aldrei alveg að njóta ástarinnar og lífsins sem hún hefur upp á að bjóða. Lífið er nefninlega allt öðruvísi þegar maður er ástfangin. Betra. Skemmtilegra. Fallegra. Innihaldsríkara. Skyggir á púka. Púki, farðu og bíttu í brosandi kex

Ég sem er ástfangin og hamingjusöm hef ekkert með púka að gera. Ég sem er lánsamari en margir aðrir sem læra aldrei alveg að njóta ástarinnar og lífsins sem hún hefur upp á að bjóða. Lífið er nefninlega allt öðruvísi þegar maður er ástfangin. Betra. Skemmtilegra. Fallegra. Innihaldsríkara. Skyggir á púka. Púki, farðu og bíttu í brosandi kex
þriðjudagur, 6. september 2011
Ostasallat Stefaníu
mánudagur, 5. september 2011
Lata pulsa
Þessi einfaldi letiréttur fyrir tvær latar lúður kom verulega á óvart
Kartöflur skornar niður og soðnar í saltvatni í um 10 mínútur.
Þunnt skorinn laukur steiktur í smjöri stutta stund, rétt til að mýkja og glæra.
3/4 dl af hvítvínsediki hellt út á laukinn ásamt 1 dl af vatni og látið sjóða stutta stund.
1 tsk af sykri sett saman við ásamt kartöflunum.
Saltað og piprað og steikt í gegn, þó án þess að brúna laukinn mikið.
Pylsur steiktar skv leiðbeiningum á pakka.
Hefur annars e-r lesið leiðbeiningar á pylsupakka? Ekki ég.
Gestgjafinn - 8.tbl.2007
sunnudagur, 4. september 2011
Myndar-stell
fimmtudagur, 1. september 2011
Þessi myndarlegi snáði
fæddist á Óðinsgötu fyrir 64 árum. Hann var í góðu yfirlæti er ég heyrði í honum fyrr í kvöld; kominn til systur minnar á Hellu úr hringferð um landið, búinn að fá pakka, góðan mat og var að fara að gæða sér á ekta rjómatertu sem mamma gerir bestar. Áreiðanlega búinn að fá knús frá litlum, sætum systrum. Pabba leiðist sko hvorki að fá faðmlag né að gefa faðmlag. Pabbi er líka með hlýjan og góðan faðm. Faðm sem hefur óspart knúsað 5 börn, 8 afabörn, 4 langafabörn og er enn að. Sem betur fer. Hlý og góð faðmlög eru gulls ígildi.
miðvikudagur, 31. ágúst 2011
Skel
Í áframhaldi af mér leiðist, þá leiðist mér óskaplega að tala um pólitík. Mér finnst gaman að hlusta á skoðanir og sjónarmið annara, en mér leiðist pólitískar umræður með trúarofstækiskeim. Því miður vill of oft svo verða. Fyrir nú svo og utan að mér hreinlega blöskrar fólk sem æjar og óar undan kreppunni en bíður samt eftir að 2007 snúi aftur með öllu sínu brjálæði, hroka og hleypidómum.
Talandi um bakarísmat, þá fór ég á stúfana í næsta nágrenni við nýja vinnustaðinn minn og fann hana þessa
Mér leið eins og ég hefði dottið í lukkupottinn á uppboði. Skel var uppáhaldið mitt (eitt af nokkrum reyndar) í bakaríinu þegar ég var barn. Og þessi bragðaðist alveg eins og mig minnti að skeljar ættu að bragðast.
Ýtti á e-n takka á sjónvarpsfjarstýringunni.
"Augnablik, hleð inn sjónvarpsviðmóti" birtist á túbuskjánum. Sá myndarlegi er erlendis svo ég neyddist til að finna út úr þessu sjálf. Slökti því á sjónvarpinu. Fór að hugsa um viðmót. Hjá fólki. Komst að eftirfarandi;
Mér leiðist óskaplega biturt fólk.
Mér leiðist líka stjórnsamt fólk, fólk sem kann ekki að sleppa takinu og njóta nútíðarinnar, fólk með frústrasjónir og endalausa komplexa út í annað fólk.
Að auki leiðist mér líka dónaskapur, sér í lagi af fullorðnu fólki sem ætti að kunna að skammast sín og sýna lágmarks kurteisi öðrum til handa.
Mér leiðist fólk sem fettir fingur út í hamingju annara, fólk sem kann ekki að samgleðjast öðrum.
Og eins og þetta sé ekki nóg, þá leiðist mér mest af öllu fólk sem fettir fingur út í e-ð sem það gerir svo sjálft, og þá er það í lagi og jafnvel kjút, skondið og skemmtilegt.
Mér leiðist nebbla líka hræsni.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
