Var alveg hlandviss um að ræktin yrði yfirfull af einbeittum lýð með nýársheitarmöntrur og hrökkkexmylsnur í báðum munnvikum. Vildi svo skemmtilega til að ég hafði rangt fyrir mér, svo rangt að á tímabili var ég farin að óttast að það yrði enginn tími. Hæfileg blanda af Thai chi, Pilates, Yoga og temmilegt magn af kerlingum. Kamillute í bolla og frúin harla roggin með sjálfa sig fyrir að hafa hlunkast í ræktina á árdögum nýs árs.
Á fyrsta kvöldi ársins sauð myndarlegi maðurinn hrísgrjón, dró fram bút af hamborgarhrygg og hangikjeti, baunablöndu í skál og brúna sósu sem hann hitaði upp. Sjálf kippti ég ekkjunni inn af veröndinni og skenkti í glös enda engin hemja að ætla lengra inn í nýtt ár án þess að væta kverkarnar með kampavíni (og þá meina ég kampavíni).
Merkilegt annars hvað 3ja daga vinnuvika er löng.
fimmtudagur, 3. janúar 2019
þriðjudagur, 1. janúar 2019
Af konu og kampavínsleysi
Eftir að hafa lesið langt fram á morgun líður mér eins og ég sé andvaka eftir 4 tíma svefn. Sit við eldhúsborðið í myrkrinu í slopp af þeim myndarlega og dauðlangar í rjúkandi kaffi. Á síðasta kvöldi nýliðins árs át ég safaríkasta kalkún sem ég hef á ævi minni smakkað og úðaði þar á eftir í mig besta heimatilbúna ís sem ég hef á sömu ævi bragðað. Fór á brennu, sem ég hef ekki gert í nokkur ár, og hugsaði til pabba míns. Hló að skaupinu, mér til mikillar furðu, og reyndi að rifja upp hvenær það hefði gerst síðast. Á miðnætti sat ég í sprengingum og látum og las ljóð Ólafs Jóhanns Sigurðsson milli þess sem ég dáðist að sofandi 10 mánaða drengnum sem ég gætti meðan foreldrar hans og sá myndarlegi og elsti bróðir þeirra og frú og dóttir þeirra og piltar hennar hurfu út í buskann að mæna á sprengjuæði landans.
Í fyrsta skipta í háa herrans tíð, eins langt og hún nú annars nær fyrir konu á fimmtugsaldri, drakk ég ekkert kampavín á gamlárs (nei, freyðivínsglasið sem ég dembdi í mig þarna eftir miðnættið telst ekki með). Ekkjurnar mínar tvær lúra því ískaldar á sínum stað, önnur í ísskápnum, hin á veröndinni, og bíða eftir því að fá að iða.
Ég er nú samt að hugsa um að byrja á því að hella uppá blessað kaffið. Aldrei að vita nema ég fái mér konfektmola líka, það er jú víst nýtt ár. Eina ferðina enn.

fimmtudagur, 6. desember 2018
Fésbókin er eins og gömul frænka
Fésbókin vildi óð og uppvæg benda mér á það um daginn að 11 ár væru liðin síðan ég gekk til liðs við hana. Henni þykir víst svo vænt um mig að hún var búin að búa til handa mér myndband sem hún var æst í að ég myndi deila með öllum heiminum en mér datt ekki í hug að láta það eftir henni. Í myndbandinu var vissulega fyrsta prófílmyndin af mér og einhver haugur af myndum af mér og Pétri (skyldi líklega engan undra) en ég var samt soldið sár að sjá ekki fyrstu myndina af okkur Pétri þarna á þessu fésvídjói.
Af hverju? gæti einhver spurt. Jú, málið er nefninlega það að mánuði eftir að ég hóf samlífið með fésbókinni leyfði ég bestu vinkonu minni að teyma mig á bar þar sem ég hitt þann myndarlega í fyrsta sinn. Það sem eftir lifði af því kvöldi mændi ég á þann myndarlega, talaði frá mér allt vit og ákvað síðan að stinga hann af.
Af hverju? gætuð þið aftur spurt. Jú, stundin sú var hreint út sagt bara svo frábær að ég vildi eiga hana ósnerta í minningunni. Hvað ég meina með því á ég kannski eftir að segja ykkur síðar frá nema að degi eftir að ég stakk þann myndarlega af á ónefndri ölstofu hér í bæ fékk ég skilaboð á fésbókinni frá rauðhærðum manni með rammskakka fremri tönn sem þótti víst afar leitt að hafa misst af mér kvöldinu áður og vildi endilega fá að hitta mig aftur og ég sat við tölvuna mína í ponku skonsunni minni í Skaftahlíð og hugsaði WHAT?! Hringdi í snarhasti í vinkonu mína og spurði hana hvort maðurinn sem ég hefði hitt kvöldinu áður væri ekki örugglega dökkhærður með þráðbeinar tennur? Besta vinkona mín svaraði með "Katla mín, þetta var G.Pétur Matthíasson, fréttamaður " og ég svaraði; nei, hann vinnur hjá Vegagerðinni þessi sem ég hitti í gær!
Síðan eru liðin einhver ár en við Pétur getum víst ekki neitað fésbókinni um að hafa spilað stórt hlutverk í lífi okkar og því vel við hæfi að birta hér fyrstu myndina af okkur á fésinu

![]() |
| Sigurbjörg og Guðmundur |
fimmtudagur, 22. nóvember 2018
Wake me up
before you go-go ómaði í bílnum í gærmorgunn, ef morgunn skyldi kalla. Lagið vel við hæfi, karlinn var að go-go alla leið til Stokkhólms. Í vinnuferð. Nei, ég nennti ekki að keyra hann alla leið til Keflavíkur, BSÍ varð að duga.
"Nú er að finna uppskriftir" sendi sá myndarlegi mér í sms-i í dag. Þið munið kannski einhver eftir þessari bloggfærslu? Ekki bara er eiginmaðurinn búinn að kaupa sama magn af kantarellum, hann hefur einnig fest kaup á tylft af öðrum sveppum sem jú, ég verð að viðurkenna að líta mjög vel út, en ég hef ekki hugmynd um hvaða tegund af sveppum þetta eru.
Sá myndarlegi kemur heim á morgunn. Þá verð ég farin til Lundúnar.

föstudagur, 16. nóvember 2018
Silkislök á degi íslenskrar tungu
Þar sem ég kom akandi upp Ægisgötu, reiðubúin að beygja til hægri, sá ég bíl koma upp Túngötuna og steig því á bremsuna sem reyndist svo óþarfi þar sem Túngötubifreiðin beygði án þess að detta í hug að setja á stefnuljós því til kynna. Ökumaðurinn fyrir aftan mig var ekki jafn fljótur að stíga á bremsuna og ég. Út úr bílnum snaraðist skeggjaður ungmaður með afsökunarorð á vörum, reiðubúinn að játa á sig aftanákeyrslusök.
Sjálf var ég sultuslök, fljótandi af yfirvegun eftir klukkustundaflot í Hydra Float kvöldinu áður. Reyndi að sannfæra ungmanninn um að fall væri fararheill og helgin framundan hlyti að verða okkur báðum góð. Meint aftanákeyrsla reyndist meira núningur og ekki neitt að sjá á bifreiðinni.
Hlusta núna á ömmudjass og snarkið í kjúklingabringunum á pönnunni. Var búin að lofa þeim myndarlega spakkettíi í kvöld en skipti svo um skoðun í búðinni. Svei mér þá ef ég flýt ekki enn af vellíðan og ró.
Er á því að afslöppun sé vanmetin í nútíma samfélagi. Stefnuljós því miður líka.

föstudagur, 9. nóvember 2018
Annar í Örkinni hans Nóa
Að seinna sinni tók ég enga sjénsa og fylgdi uppskriftinni útí ystu æsar, snéri meira að segja skálinni á hvolf til að vera nú alveg viss um að hafa Mögguþeyting á sykurblönduðum eggjahvítunum. Viti menn, gumsið stóð stíft svo ég var fljót að skófla því í tvö form og henda inní ofn. Dró út skúffur og skellti allskyns slikkeríi frá Nóa og Síríus á borðið, að undanskildum kókosbollunum. Sótti jarðarber í ísskápinn. Þeytti rjóma. Fullt af rjóma.
Morguninn eftir vaknaði ég snemma. Bræddi Nóa rjómakúlur og rjóma í potti. Stakk mér í sturtu meðan bræðingurinn kólnaði.Eftir sturtu dundaði ég mér við að láta kúlusósuna leka yfir marengsturninn. Dreif mig svo í vinnuna með bombuna í farþegasætinu frammí. Getið sveiað ykkur uppá að vinnufélögunum leiddist ekki vitundar ögn að neyðast til að gúffa þessari dásemd í sig með morgunkaffinu
Fyrir áhugasama get ég staðfest að umrædd marengsterta (í síðustu 2 færslum frúarinnar) er að finna í nýjasta kökubæklingi Nóa-Síríus
Príma bomba.
sunnudagur, 4. nóvember 2018
Örkin hans Nóa
OK, ég það til að vera óþolinmóð (næstum aldrei samt), þess vegna hugsaði ég nei, Magga systir myndi segja mér að hræra lengur þegar ég var eiginlega viss um að eggjahvítusykurhræringur Kitchen Aid-vélarinnar væri nægur. Svo ég lét þá rauðu snúa áfram þar til mér var allri lokið og ákvað að nóg væri nóg. Uppskriftin segir að hangi stöffið fast í skálinni, sé henni snúið á hvolf, þá séu eggjahvíturnar klárar. Nema ég var ekkert að ómaka mig við slíka smámuni en þar sem ég dreifði þessu í formunum tveimur hugsaði ég andskotakornið, Magga systir hefði nú hrært þetta lengur.
Nú verður ekki aftur snúið, ofninn var orðinn heitur og ég flýtti mér að skella formunum inn. Lyktin sem fyllir húsið er verulega góð en botnarnir sem myndast við að myndast þarna inni líta bara alls ekki neitt út eins og marengsbotnar!
Þessari færslu fylgja því engar myndir heldur þetta lauflétta, hressa lag sem ég mæli með að hlustað sé á til enda

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)