fimmtudagur, 6. september 2012

Á morgun, á morgun...

Stóð í baðkarinu áðan og furðaði mig á hvað vatnsbunan var heit. Alveg þar til ég uppgvötaði að kraninn var stilltur á 50, þá fyrst fann ég að það var brennandi heitt en ekki bara óvenju heitt. Meira hvað maður er ósjálfbjarga þegar betri helmingurin bregður sér af bæ. Ligg í skítakulda í bælinu og næ ekki að halda hita á sjálfri mér. Get heldur ekki horft á sjónvarpið því það er stillt á dvd-ið sem er ágætt, ég skelf þá bara af kulda en ekki hræðslu líka. Væri vís með að horfa á e-ð skerí glæpastöff ef ég kynni að gera e-ð meira en bara kveikja og slökkva á bannsettu viðtækinu.

Á morgun kemur sá myndarlegi heim. Ætla að gefa honum upphitað lasanja og senda hann með soninn beina leið á Ísland - Noregur. Þeir feðgar munu áreiðanlega njóta vel, hvorugur er áhugamaður um fótbolta.

Djöfuls skítakuldi. Ætti ég að sofa í sloppnum?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sloppnum og ullarsokkum :O) ég gæti líka sent þér hjásvæfur sem sofa ´inn-í-manni´ svo þér verði ekki kalt og ein ;O)
xxx stóra siss

Frú Sigurbjörg sagði...

Er hægt að panta systurnar og fá heimsent? Karlinn fer aftur eftir hálfan mánuð.

Nafnlaus sagði...

Haltu honum heima og vertu í ullarbrók!!! Kærust frá okkur Bróa

Íris sagði...

þeir hljóta að hafa skemmt sér vel á þessum leik þrátt fyrir fótboltaáhugaleysið. Mér finnst að sá myndarlegi eigi að gefa þér almenninlegt ullarundirfatasett til að sofa í þegar hann er á flakki.